föstudagur, 9. desember 2011

Sýningardagurinn!

Nú er komið að því!
Allt klárt og reddý fyrir skilin, sviti og tár farið í þessa mynd svo ég hlakka bara til að vita hvað þeir segja um hana. Ég gerði mitt besta og hvað getur maður meira en það! :)

Hérna er utanum hulstrið


Hér DVD hulstrið

og plaggatið er neðar á síðunni

miðvikudagur, 7. desember 2011

Lokaspretturinn

Mamma kom til mín í gær að hjálpa mér að velja efni sem ég ætti að hafa í myndinni og hvað ekki. Það tók ''bara'' 2 tíma að fara í gegnum það og við fórum ekki einu sinni í gegnum alveg allt..
Nú er það bara að fara að setja allt saman, þetta er búið að taka svo ótrúlega langan tíma að fara yfir öll viðtölin að ég er ekki komin lengra en þetta. Það er mjög glatað þar sem ég þarf að skila þessu eftir 2 daga.. og engin mynd komin enþá.. :(

En nú er það bara að spýta í lófana og klára þetta!