Ég lagði af stað í lítið ferðalag með það í huga að kynnast afa mínum, föður móður minnar Friðjóni Sveinbjörnssyni. Hann lést tvemur árum áður en ég kem í heiminn. Alla tíð hefur mig langað að kynnast þessum merka manni, alltaf þegar ég kynni mig sem barnabarn hans þá er mikið brosað og fagnað. Hver var afi minn?
Afi fæddist og ólst upp á Snorrastöðum. Hann fluttist í Borgarnes og kynnist Björk Halldórsdóttur. Þau eignuðust saman þrjár dætur Sigríði, Margréti og Halldóru Björk og áttu fallegt og gott líf saman. Í 33 ár starfaði Friðjón í Sparisjóð Mýrasýslu og þar af 29 ár sem bankastjóri. Hann var mikill já-maður og gerði hvað hann gat fyrir alla sem leituðu til hans. Friðjón sat í stjórn Sambands íslenskra sparisjóða, Tryggingasjóði sparisjóða, var forsvaramaður Tónlistarfélags Borgarfjarðar og virkur í kórstarfi og leiklist. Einnig sat hann í stjórn minningarsjóðs Guðmundar Böðvarssonar og var fréttaritari hjá Ríkisútvarpinu í mörg ár.
Sveitin var honum mjög kær og fór hann þangað þegar hann átti þess kost, til að hjálpa til. Laugardaginn 1. september 1990 fer hann vestur að Snorrastöðum að hjálpa til, með heybagga í fanginu hneig hann niður og steig ekki upp aftur.
Ég geri þessa heimildarmynd ekki bara fyrir sjálfa mig heldur er þetta saga allra sem kynntust Friðjóni. Merkar heimildir um merka tíma sem rita þarf niður. Þetta er saga afa míns sem ég fékk að kynnast með hjálp yndislegra vina og fjölskyldumeðlima. Takk kærlega fyrir mig.
Hvernig hljómar þetta?? =o
