mánudagur, 23. apríl 2012

Svona lítur plaggatið mitt út í dag. Sýni kennaranum mínum það á miðvikudaginn og þá er kannski eitthvað sem þarf að laga!
En þetta er það sem komið er. Nokkuð sátt með þetta!



Hérna er myndin sjálf komin eins og hún á að vera nema það vanntar auðvitað hljóðið.
Einnig vanntar stefið í byrjun. Ég er enn að setja það saman!
Stefið á að vera eins og hálfgerð kynning á þættinum sem kemur alltaf í byrjun hvers þáttar. Hálfgert Logo!




http://vimeo.com/40831110

þriðjudagur, 3. apríl 2012

Ferillinn að lokamyndinni

Í dag, þriðjadaginn 3. apríl kláraði ég að taka lokamyndina mína! Þetta er alls ekki búið að vera auðvelt sérstaklega þar sem ég er búin að vera að flakka fram og til baka með hugmyndir af handriti.

Svona lítur ferillinn að lokamyndinni í grófum dráttum:


Janúar - Hugmyndin fundin.
Ég ákvað að gera stuttmynd sem myndi hæfa allri fjölskyldunni. Eitthvað í líkingu við Pat&Mat og Shaun the sheepStopMotion mynd! Hugmynd af handriti var gerð en aldrei fann ég akkúrat það sem mig lanaði að gera. Var með hugmynd af klaufadegi hjá þeim vinunum að hengja upp þvott á snúru í bráluðu roki, eða setja upp loftnet á húsþakið.

 







Febrúar - Handrit og súdíó
Handritið og story boardið var alltaf að þvælast fyrir mér, hvað væri skemmtilegast að gera, hvað væri fyndnast, hvað væri auðveldast ... o.s.fr.v... enalausar hugmyndir en enginn gekk nógu vel.
Ég var komin með tillögur af sviðinu og hvernig efnivið ég ætlaði að nota. Aðal karakterinn, Þór var einnig kominn. Ég pældi mikið í því hvort ég ætti að hafa Þór í fötum eða ekki..
Flekkur var mesti hausverkurinn því mér fannst hann sá mikilvægasti.



Mars - Handrit, story board og stúdíó

Þennan mánuðinn fór sviðið að taka á sig réttu mydnina. Ég fékk hálfgert brainstorm og kláraði sviðið og varð mjög sátt með það! Húsið þeirra Flekks og Þórs var gert úr pappakassa, eins skemman, sandur settur á borðið, borað í plötuna fyrir greinar sem áttu að vera runnar og gamalt riðgað bíladrasl dreift hér og þar um plötuna!
Handritið var alltaf í klessu hjá mér. Ég fór að teikna upp storyboardið en það varð alltof erfitt miðað við það hvað fáa möguleika ég hafi. Sérstaklega hvað varðaði hreifigetu Þórs og tilvonandi Flekks.
Já, svo var það algjört klúður að finna hvað ég ætti að nota sem Flekk (sem er forystuhrútur ef þið skilduð ekki hafa vitað það). Við Árni ákváðum að taka einn svona karl, eins og Þór í sundur, og minnka hann svo hann gæti verið svipaður á hæð og venjulegur hrútur. Ég vafði utan um hann ull og stakk snúnum vír í hausinn á honum fyrir horn.
Jæja þá var þetta komið, en ekki handritið. Ég var ALDREI sátt við neitt.. Þangað til 31. mars fann ég hugmyndina!



Ég fékk hana frá  Wallace And Gromit - A Matter Of Loaf And Death
( http://www.myspace.com/video/danman/wallace-and-gromit-a-matter-of-loaf-and-death/49816402 - mæli með henni hérna! )



 og krúttlegu ástarsenunni í Bamba þegar skúnkurinn, kanínan og Bambi verða ástfangnir í fyrsta skipti !!
(http://www.youtube.com/watch?v=lRhbjUzucec)







Svo þá kom handritið alveg á fleigi ferð inn í hausinn á mér, rann niður eftir hendinni og lennti á blaðinu!
Þá ákvað ég að ég skildi vera með tvær ''mennskar'' verur, Þór og Lilju og tvær kindur, Flekk og Dúnu.
Ég skellti gulum spottum á hausinn á Lilju, gerði Dúnu nákvæmlega eins og Flekk nema án horna og með hvíta ull utaná sér!

Apríl
Þann 2. og 3. apríl skaut ég svo myndina og gekk bara nokkuð vel, tók mjög langan tíma en það hafðist allt að lokum!
Núna er það bara að byrja að setja saman allar ljósmyndirnar!

fimmtudagur, 29. mars 2012

Félagarnir

Allveg með þetta! =D
 Núna er ég komin með handritið nákvæmlega eins og ég ætla að hafa það!

Ég ætla að nota þessa senu mér til aðstoðar, þá aðalega þegar skúnkarnir hittast.
http://www.youtube.com/watch?v=lRhbjUzucec

Svo ætla ég mér líka að nota þessa mynd mér til aðstoðar þegar Wallace hittir konuna
http://www.myspace.com/video/danman/wallace-and-gromit-a-matter-of-loaf-and-death/49816402
Mæli með því að þið skoðið þessa mynd, hún er ótrúlega skemmtileg :)

Ég verð með 4 persónur í myndinni
2 kindur = Flekk og Dúnu. Þau verða ástfangin
2 Manneskjur = Þór og Lilju. Þau verða ástfangin

Ég æta að hafa smá kynningu í byrjun þáttarins til þess að kynna aðalpersónurnar; Flekk og Þór, Félagana! Á eftir að ákveða nákvæmlega hvernig það verður, en kynningin verður líka trailerinn!