fimmtudagur, 20. október 2011

Heimildarmyndin mín

Ég kynntist aldrei afa mínum, pabba mömmu minnar. Hann lést tvemur árum áður en ég fæddist. Aðeins 57 ára gamall.Hvert sem ég fer og hann berst í tal er ekkert annað sagt en hversu einstakur og góður maður hann var.

Mig langar að kynnast honum, fá að vita hvernig hann var sem bróðir, sem pabbi, eiginmaður, vinur og afi. Þetta eru merkar heimildir, ekki bara um hann heldur líka um þennan tíma þegar hann var uppi og það verður að fara að festa þetta á blað/filmu áður en allir fara frá okkur sem geta sagt söguna. 

Mig langar og ætlar mér að gera þetta vel því þetta er mér mjög persónulegt.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli