Ég er aðeins byrjuð að gera storyboard en það tekst ótrúlega illa. Eins með tritment-ið fyrir myndina. Ég sé þetta allt saman fyrir mér og hvað ég vil fá frá hverjum og einum en þegar ég er að gera handritið/tritmentið þá lokast ég alveg. Ég vil eitthvað áhveðið en ég veit ekki hvað ég fæ og hvort það passi við hér eða hér. Fyrir mér er þetta frekar mikið mál. Kannski er þetta ekkert mál. Ég er byrjuð og komin með eitthvað en ég fæ mig ekki til að halda áfram.
Hér er ein mynd af því hvernig mér datt í hug hvernig ég ætti að hafa myndavélaskotin þegar ég er að tala við systkini afa. Ég ætla að vera með eina fasta vél. Ég vil að hún sýni okkur öll (þarna á myndinni sér myndavélin systkinin bara), ég vil sýna mig líka afþví að það er ég sem er að kynnast afa mínum sem ég kynntist aldrei. Svo verð ég með eina hreyfinlega myndavél sem ég þá súma á þann sem er með aðal orðið. Stundum verða það kannski 2 manneksjur þá súma ég aðeins út og ramma þær tvær inn! Þessi vél má samt ekki vera mjög truflandi. Hljóðnema-standur með stefnumæk í rottu verður staðsettur fyrir ofan þau þrjú í þeirra stefnu. Veit ekki alveg hvort ég eigi að hafa míkraphon á mér..? Svo er spurning hvort það verði mikið um glugga þarna í kring (langt síðan ég kom þarna síðast, man ekki) eða ekki þá hvort ég þurfi auka ljós eða ekki.
Ég fer mjög líklega að taka þetta upp um helgina! Hlakka mjög til að sjá afraksturinn! Vonandi klúðrast ekki of mikið hjá mér ;)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli