Í gær fór ég til Helgu frænku minnar, systir Friðjóns afa míns og hitti þar systkini hans (Stjána (Kristján), Betur og auðvitað Helgu) og tók viðtal við þau. Það var mjög yndislegt að tala við þau og gátu þau sagt mér heilmargt um afa minn.
Við sátum öll saman inni í stofu. Ég stillti upp tvemur myndavélum, einni með vítt skot yfir þau öll og eina sem er í mjög nálægu skoti á andlit, handahreifingar o.s.fr.v. Ég ætlaði að hafa close-up vélina bara við hliðiná á mér á þrífætinum til þess að ég gæti tekið þátt í samræðunum en ég hætti svo við og hélt á henni svo ég gæti ráðið skotunum betur. Held að það hafi komið betur út.
Ég veit ekki alveg hvernig hljóðið tókst hjá mér. Ég var með rottu-mæk fyrir ofan þau og svo var ég með mæk á close-up vélinni og var stundum með hana mjög nálægt svo ég held að það sé allavena eitthvað hljóð og vona, vona, vona, vona, vona að það sé gott en ég veit ekki alveg. Krossa fingur :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli