Úff.. nú fer allt að bresta á. Síðasti tíminn fyrir plaggatið, það var nú að mestu komið upp, triler er að detta í hús og svo er það bara að byrja að klippa og klára coverið á diskinn og bæklinginn! :)
Það er svo stutt í skilin, ég á varla orð yfir því hvað ég er stressuð...
Skólinn er búinn á miðvikudaginn og mér finnst ég eiga svo mikið eftir.
Hvernig á ég að klippa myndina mína?
Hvernig á ég að byrja?
Hvernig á ég að láta þetta passa í 15 mínútur?
AAAAA!!!
Smá stress kasst hérna ;D
Ég ætla að vera súper dugleg í dag og á morgun, fer í smá frí frá skólanum um helgina, aðeins að pústa svo verð ég brjálaðslega dugleg eftir helgi.
Þá þarf ég að klára klippinguna, lita leiðrétta, hljóðið, spurning með einhverja grafík.. veit samt ekki hvort ég hafi tíma í það og hvort það passi yfir höfuð..??
Ég verð bara núna að skipuleggja mig geggjaðslega vel! Ég vil gera þetta vel og það skal takast hjá mér. Þetta verður mjög persónuleg mynd. Vonandi fær fólk smá kökk í hálsinn þegar þau horfa á hana! Ég fékk allavena smá sollis þegar ég var að gera trilerinn :) Þetta er orðið svo tengt mér og persónulegt að þegar ég er að skrifa þetta þá finn ég fyrir smá hita í augunum og það er erfitt að kingja. :)
Ég vil hafa þessa mynd fallega og einlæga. Ég fékk að kynnast afa mínum og það var það sem ég ætlaði mér og því markmiði er náð nú er bara að gera fallegan hlut úr því sem ég hef. Setja þetta í samhengi.
Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt verkefni, ég er búin að kynnast systkinum afa míns miklu betur en ég gerði, amma mín sem ég hélt að ég þekkti inn og út kom með sögur af sér og afa sem mér datt aldrei í hug að hefði gerst (góðar sögur!). Og fékk að kynnast mínum nánasta bæ, Borgarnesi miklu betur. Ég er svo þakklát fyrir hvað það voru margir sem vildu taka þátt í þessu með mér, hver einn og einasti tók svo yndislega vel í þetta og fannst ekkert annað en sjálfsagt að hjálpa mér!
En þetta er ekki búið, ég á eftir að blogga soldið í viðbót, á ferkar mikið eftir miðað við tímann sem ég hef svo.. það kemur meir! :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli