Jæja..
Núna er ég búin að taka viðtal við flest alla. Nema mömmu og systur hennar, Dóru og Siggu. Svo er spurning að fá að taka viðtal við fyrstu barnabörnin hans, börn Siggu - Friðjón Snorra og Guðnýju. Finnst það vera mjög viðeigandi og eiga örugglega fallegar minningar af honum.
En núna er það bara að fara að klippa það sem komið er. Sýningatíminn er 9. desember (á eftir að áhveða nákvæman tíma) svo það er allTOF stuttur tími svo það er kominn smá stress í mig..
Ég er í raun ekkert búin að áhveða mig hvernig ég ætla að gera þetta, veit bara að ég ætla að hafa þetta í tímaröð - frá því að hann kemur í heiminn og þangað til að hann deyr. Svo kemur afgangurinn hvernig það verður sett upp bara þegar ég er búin að skoða upptökurnar! :)
Mig langar til að standa mig vel og ég er búin að leggja mjög mikið á mig fyrir þessa mynd, bæði andlega og líkamlega.
Það er eitt viðtal sem ég kvíði mjög að sjá hvernig tókst því ég var í mjög þröngu rími og búið að vera mikill asi á mér svo ég hennti myndavélinni bara einhvern veginn og settist á móti viðmælenanum og svo þegar ég var búin að taka upp þá fattaði ég að það hafi verið glampi á gleraugunum hennar.. sem er þá næstum því ónothæft.. en ég krossa fingur og vona það besta!
Ég hefði viljað hafa sérstakan upptökumann til að hjálpa mér svo hann gæti hugsað bara um tökurnar og ég bara um að tala við viðkomandi. Og bara þar sem ég er ekkert svo tæknivæn á þessar myndavélar, veit ekki hvernig hljóðið fór.. t.d... svo .. æjji ég vona það bessssta! :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli