Núna er ég búin að taka viðtal við öll systkinin. Ég fór í vikunni sem leið til Hauks, næst elsta bróðurinns sem býr á Snorrastöðum. Hann sýndi mér bæinn, hvar hlaðan stóð þar sem Friðjón afi dó og fleirri fallega staði. Haukur fór með nokkrar vísur eftir afa og sagði mér t.d. frá því þegar þeir fóru saman í hestaferðir. En þeir voru báðir miklir hestamenn.
Ég tók líka viðtal við dóttir Hauks, Dísu Möggu. Hún var 18 ára þegar afi dó og var í hlöðunni þegar hann deyr. Dísa Magga segir mér frá þessum mikla og erfiða atburð. Það er mjög erfitt að taka svona viðtal upp og var þetta mín fyrsta reynsla af því. Ég veit ekki alveg hvernig mér tókst til sem spyrjandi en ég reyndi bara að skapa eðlinlegt andrúmsloft og var búin að vara hana við þessari spurningu. Hún missti fóstur þegar hún var komin 7 mánuði á leið. Nokkrum árum seinna fæðir hún lítinn strák en síðustu vikur meðgöngunnar dreymir Dísu Möggu afa Friðjón koma til sín. Hann kemur til hennar í draumi á mjög erfiðum tíma og stiður hana í gegnum síðustu vikurnar. Þessi litli strákur heitir í dag Friðjón í höfuðið á afa Friðjóni.
Þetta finnst mér lýsa afa mjög vel. Ef einhver er á erfitt andlega eða á í vanda þá mætti hann og mætir enn til að hjálpa. Hann var alltaf að hjálpa öllum. Mér finnst það hafa komið vel til skila með þessari frásögn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli